Með því að stofna aðgang eða nota þjónustuna samþykkir notandi skilmála þessa.
1. Um SEKOND
1.1 SEKOND er stafræn þjónusta rekin af Sekond ehf. sem gerir notendum kleift að kaupa og leigja fatnað, fylgihluti og aðra muni, sem og að leggja inn eigin muni til sölu eða útleigu.
1.2 SEKOND selur og leigir vörurnar í eigin nafni. SEKOND er seljandi gagnvart kaupanda og leigusali gagnvart leigutaka og gefur út kvittun í eigin nafni.
2. Aðgangur
2.1 Notandi skal veita réttar upplýsingar, gæta aðgangsupplýsinga sinna og ber ábyrgð á notkun aðgangs síns. Notandi skal vera 18 ára eða eldri til að eiga viðskipti.
2.2 Óheimilt er að nota þjónustuna með sviksamlegum eða ólögmætum hætti, stofna aðgang undir fölsku nafni eða sniðganga reglur hennar með fleiri aðgöngum eða öðrum hætti.
3. Innlegg
3.1 Um skráningu vöru til sölu eða útleigu gilda innleggsskilmálar SEKOND, sem innleggjandi samþykkir við skráningu. Með skráningu staðfestir innleggjandi að hann eigi vöruna, að hún sé ófölsuð og að lýsing og ástandsmat séu rétt.
3.2 SEKOND áskilur sér rétt til að hafna innleggi eða fjarlægja vörur af vettvangnum án rökstuðnings. Greiðslur til innleggjanda fara eftir innleggsskilmálum og koma til útgreiðslu þegar viðskipti teljast endanleg.
4. Kaup og afhending
4.1 Samningur kemst á þegar SEKOND staðfestir pöntun. Birt verð innihalda virðisaukaskatt; sendingarkostnaður birtist fyrir staðfestingu.
4.2 Afhending fer fram með rekjanlegri sendingu á skráð heimilisfang kaupanda eða með beinni afhendingu milli kaupanda og innleggjanda. Sé bein afhending valin semja aðilar um stað og tíma innan spjallkerfis SEKOND. Bein afhending telst fullframin og áhætta flyst til kaupanda þegar báðir aðilar hafa staðfest afhendinguna með rafrænum afhendingarkóða í appinu. Mæti innleggjandi ekki til afhendingar innan umsamins frests fellur pöntunin niður og SEKOND endurgreiðir kaupanda greiðsluna að fullu.
5. Skilaréttur í kaupum
5.1 Kaupandi getur fallið frá kaupum innan 14 daga frá móttöku vöru, sbr. lög nr. 16/2016, með ótvíræðri tilkynningu í appinu eða á [email protected].
5.2 Vöru skal skilað innan 14 daga frá tilkynningu. Kaupandi ber kostnað af skilum.
5.3 Endurgreiðsla fer fram innan 14 daga frá tilkynningu, með sama greiðslumáta. SEKOND getur haldið endurgreiðslu þar til varan berst eða sönnun um sendingu liggur fyrir, og dregið frá rýrnun sem stafar af meðferð umfram það sem þarf til að skoða vöruna.
6. Ástand vöru og gallar
6.1 Vörur eru notaðar og seldar í því ástandi sem fram kemur í vörulýsingu, á ljósmyndum og samkvæmt tilgreindum ástandsflokki. Varan telst gölluð ef ástand hennar svarar ekki til þeirrar lýsingar sem gefin var við sölu eða ef hún reynist í verra ástandi en kaupandi mátti með réttu gera ráð fyrir, sbr. lög nr. 48/2003 um neytendakaup.
6.2 Um galla fer eftir lögum nr. 48/2003 um neytendakaup. Kaupandi tilkynnir galla án tafar í appinu eða á [email protected]; SEKOND ber kostnað af skilum gölluðu vöru.
7. Leiga
7.1 Bókun er bindandi þegar innleggjandi staðfestir hana innan þjónustunnar fyrir hönd SEKOND. Heimildarfærsla fer fram við bókun og gjaldfærsla við staðfestingu bókunar.
7.2 Leigutaki skal sækja og skila vöru á umsömdum tíma, fara vel með hana og hvorki lána hana, framleigja hana eða veita öðrum afnot af vörunni.
7.3 Ástand vöru er skjalfest með ljósmyndum við afhendingu og skil. Leigutaki ber ábyrgð á tjóni, glötun og rýrnun vöru umfram eðlilegt slit sem verður á leigutímabilinu og skal bæta það samkvæmt rökstuddu tjónamati SEKOND. Tjónamat miðast við viðgerðarkostnað eða uppgefið verðmæti vörunnar eins og það birtist við bókun, hvort sem lægra er. SEKOND sendir leigutaka matið ásamt gögnum; leigutaki hefur 7 daga til andmæla áður en fjárhæðin er innheimt skv. gr. 7.7.
7.4 Sé vöru skilað of seint er umsamið dagsgjald greitt fyrir hvern byrjaðan dag; sé henni ekki skilað innan 7 daga frá því að samþykktum leigutíma lýkur áskilur SEKOND sér rétt til að gjaldfæra andvirði vörunnar.
7.5 Afbókun leigu: Afbóki leigutaki meira en 48 klukkustundum fyrir upphaf leigutímabils fæst leiguverð endurgreitt að fullu. Afbóki leigutaki með minna en 48 klukkustunda fyrirvara fæst 50% leiguverðs endurgreitt. Eftir að leigutímabil hefst er leiguverð óafturkræft. Afbóki SEKOND eða innleggjandi bókunina endurgreiðist leiguverð að fullu.
7.6 Leiga á tilteknu, fyrirfram umsömdu tímabili fellur undir undantekningu 18. gr. laga nr. 16/2016 og því gildir 14 daga afturköllunarréttur ekki um staðfestar bókanir; um þær fer skv. gr. 7.5. Með staðfestingu á bókun samþykkir leigutaki að veiting leiguþjónustu hefjist á umsömdum tíma. Hafi leigutímabil hafist eða varan verið afhent fellur réttur til að falla frá samningi niður, sbr.18. gr. laga nr. 16/2016, og fer um afbókanir eingöngu skv. gr. 7.5
7.7 Með bókun heimilar leigutaki SEKOND að gjaldfæra bætur skv. gr. 7.3, gjöld vegna síðbúinna skila og andvirði vöru skv. gr. 7.4 á skráðan greiðslumáta, að liðnum andmælafresti þar sem hann á við. Takist gjaldfærsla ekki er SEKOND heimilt að stofna kröfu á kennitölu leigutaka í netbanka.
7.8 Þann hluta kröfunnar sem ekki fæst greiddur skv. gr. 7.7, þar með talið fjárhæð umfram 50.000 kr., er SEKOND heimilt að framselja innleggjanda vörunnar eða löggiltum innheimtuaðila. Við framsal er SEKOND heimilt að afhenda framsalshafa nafn, kennitölu, heimilisfang og samskiptaupplýsingar leigutaka ásamt gögnum um bókunina, ástand vörunnar og tjónamatið, að því marki sem nauðsynlegt er til innheimtu. Framsal breytir hvorki fjárhæð kröfunnar né andmælarétti leigutaka.
8. Greiðslur
8.1 Greiðsla fer fram innan þjónustunnar með þeim greiðslumátum sem í boði eru hverju sinni og er staðfest með sterkri auðkenningu þegar við á. Óheimilt er að ljúka viðskiptum utan þjónustunnar.
9. Endurgreiðslur
9.1 Endurgreiðslur fara fram samkvæmt köflum 5–7. Telji notandi sig eiga rétt á endurgreiðslu skal hann fyrst hafa samband við SEKOND eins fljótt og auðið er.
10. Óheimilar vörur og háttsemi
10.1 Óheimilt er að leggja inn stolna muni, falsanir, hættulega hluti eða annað ólögmætt. SEKOND getur fjarlægt vörur, stöðvað viðskipti, haldið eftir greiðslum og óskað gagna meðan grunur um brot eða svik er kannaður.
10.2 Viðskipti við sjálfan sig eða tengda aðila til að hafa áhrif á umsagnir eða greiðsluflæði, áreitni og önnur misnotkun getur leitt til lokunar aðgangs. Lokun hefur ekki áhrif á skuldbindingar sem þegar hafa stofnast.
10.3 Með birtingu efnis veitir notandi SEKOND heimild til að nota það við rekstur og kynningu þjónustunnar.
11. Ábyrgðartakmörkun
11.1 Ábyrgð SEKOND vegna einstakra viðskipta takmarkast við þá fjárhæð sem greidd var í viðskiptunum og nær ekki til óbeins tjóns, að því marki sem lög leyfa. Ákvæðið takmarkar ekki ófrávíkjanleg réttindi neytenda.
12. Annað
12.1 Um vinnslu persónuupplýsinga fer samkvæmt friðhelgisstefnu SEKOND.
12.2 SEKOND áskilur sér rétt til að uppfæra og breyta skilmálum þessum. Verulegar breytingar eru tilkynntar notendum með að minnsta kosti 14 daga fyrirvara í appi eða með tölvupósti áður en þær taka gildi. Noti notandi þjónustuna eftir gildistöku breytinga telst hann hafa samþykkt þær. Breytingar hafa ekki áhrif á réttindi og skyldur vegna viðskipta sem stofnað var til fyrir gildistöku þeirra.
12.3 Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Náist ekki samkomulag um ágreining getur neytandi skotið málinu til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa eða rekið mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.