Persónuvernd

Friðhelgisstefna

Síðast uppfært: 06.08.2026

1. Ábyrgðaraðili

Sekond ehf. (hér eftir „Sekond" eða „við") er ábyrgðaraðili að vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem lýst er í þessari stefnu.

AtriðiUpplýsingar
NafnSekond ehf.
Kennitala460526-1910
Netfang[email protected]

Þessi stefna nær til Sekond-smáforritsins, vefsíðunnar sekond.is og annarrar þjónustu sem við veitum.

2. Um þjónustuna

Sekond er smáforrit þar sem einstaklingar geta leigt út, leigt, selt og keypt fatnað og aðra muni hver af öðrum. Sekond er milliliður og starfar sem umboðsaðili fyrir hönd seljanda/leigusala. Til að þjónustan virki þarf að miðla tilteknum upplýsingum milli notenda sem eiga í viðskiptum.

3. Hvaða persónuupplýsingum við söfnum

3.1 Upplýsingar sem þú lætur okkur í té

  • Aðgangsupplýsingar: Nafn, netfang og auðkenni frá Apple eða Google þegar þú skráir þig inn. Notandanafn og prófílmynd ef þú velur að setja hana inn.
  • Auðkenning: Kennitala og staðfest nafn þegar þú auðkennir þig með rafrænum skilríkjum.
  • Símanúmer: Til staðfestingar á notanda og vegna samskipta um viðskipti.
  • Skráningar og vöruupplýsingar: Myndir, lýsingar, verð, stærðir, afhendingar- og staðsetningarupplýsingar sem þú skráir.
  • Greiðslu- og útgreiðsluupplýsingar: Bankareikningur (og kennitala reikningseiganda) vegna útgreiðslu til seljenda og leigusala.
  • Samskipti: Skilaboð milli notenda innan appsins, ásamt samskiptum við okkur og gögnum sem berast vegna ágreiningsmála.

3.2 Upplýsingar sem verða til við notkun

  • Viðskiptasaga: Leigusamningar, kaup, sölur, staða pantana og tímalína viðskipta (t.d. hvenær vara var sótt og skilað).
  • Tæknilegar upplýsingar: Tækjaauðkenni, gerð tækis og stýrikerfisútgáfa, IP-tala, dagsetningar og tímasetningar aðgerða, villuskrár og öryggisatvikaskrár.
  • Notkunarupplýsingar: Hvaða eiginleika appsins þú notar, í þeim tilgangi að bæta þjónustuna.

3.3 Greiðslukortaupplýsingar

Sekond tekur ekki við og geymir ekki kortanúmer eða aðrar kortaupplýsingar. Greiðslur fara fram í gegnum Apple Pay og greiðslumiðlun Landsbankans. Við fáum aðeins staðfestingu á greiðslu ásamt takmörkuðum upplýsingum um færsluna (t.d. fjárhæð, tíma, síðustu tölustafi korts og tegund korts).

4. Í hvaða tilgangi og á hvaða grundvelli við vinnum upplýsingarnar

TilgangurUpplýsingarLagagrundvöllur
Að stofna og reka notandaaðgang og veita þjónustunaAðgangs-, vöru- og viðskiptaupplýsingarEfnd samnings, 6. gr. 1. mgr. b-liður
Að miðla milli kaupanda/leigutaka og seljanda/leigusalaNafn, samskiptaupplýsingar, afhendingarupplýsingarEfnd samnings, 6. gr. 1. mgr. b-liður
Að vinna greiðslur og greiða út til seljendaGreiðslu- og bankaupplýsingarEfnd samnings, 6. gr. 1. mgr. b-liður
Að auðkenna notendur með rafrænum skilríkjumKennitala, staðfest nafnEfnd samnings og lögmætir hagsmunir, 6. gr. 1. mgr. b- og f-liður
Bókhald, reikningagerð og skattskilViðskipta- og greiðsluupplýsingarLagaskylda, 6. gr. 1. mgr. c-liður
Að koma í veg fyrir svik og misnotkun og tryggja öryggi kerfaTæknilegar upplýsingar, viðskiptasagaLögmætir hagsmunir, 6. gr. 1. mgr. f-liður
Að leysa úr ágreiningi milli notendaSamskipti, myndir, viðskiptasagaLögmætir hagsmunir, 6. gr. 1. mgr. f-liður
Að senda tilkynningar um viðskipti þínTilkynningaauðkenni, netfang, símanúmerEfnd samnings, 6. gr. 1. mgr. b-liður
Markaðssetning og fréttabréfNetfang, tilkynningaauðkenniSamþykki, 6. gr. 1. mgr. a-liður
Að bæta og þróa þjónustunaNotkunarupplýsingarLögmætir hagsmunir, 6. gr. 1. mgr. f-liður

Um notkun kennitölu: Sekond auðkennir notendur með rafrænum skilríkjum til að tryggja að viðskipti fari fram milli auðkenndra einstaklinga og vegna útgreiðslna og bókhalds. Notkunin byggir á 15. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, enda hefur hún málefnalegan tilgang og er nauðsynleg til öruggrar persónugreiningar.

5. Miðlun upplýsinga

5.1 Til annarra notenda

Þegar þú átt í viðskiptum við annan notanda fær sá aðili aðgang að þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að viðskiptin gangi eftir, t.d. nafni, prófílmynd, samskiptum innan appsins og upplýsingum um afhendingu. Kennitala þín er ekki gerð öðrum notendum sýnileg.

Upplýsingar sem þú birtir sjálf/ur í skráningum (myndir, lýsingar, staðsetning) eru sýnilegar öðrum notendum þjónustunnar.

5.2 Til vinnsluaðila og samstarfsaðila

Við nýtum þjónustu þriðju aðila sem vinna persónuupplýsingar fyrir okkar hönd samkvæmt vinnslusamningi:

  • Rafræn auðkenning: Taktikal
  • Greiðslumiðlun: Færsluhirðing Landsbankans, Apple (Apple Pay)

5.3 Til stjórnvalda og annarra

Við miðlum upplýsingum til stjórnvalda, lögreglu eða annarra þriðju aðila þegar okkur ber lagaskylda til þess eða þegar það er nauðsynlegt til að verja réttindi okkar eða annarra.

5.4 Flutningur út fyrir EES

Sumir þjónustuaðilar okkar kunna að vinna upplýsingar utan Evrópska efnahagssvæðisins. Í þeim tilvikum tryggjum við viðeigandi verndarráðstafanir, t.d. með stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnar ESB (SCC). Við leitumst við að hafa gögn hýst innan EES eftir því sem kostur er.

Við seljum ekki persónuupplýsingar til þriðju aðila.

6. Varðveislutími

Við varðveitum persónuupplýsingar ekki lengur en nauðsynlegt er:

  • Aðgangsupplýsingar: Á meðan aðgangur er virkur og í 3 mánuði eftir að honum er lokað.
  • Viðskipta- og bókhaldsgögn: Í 7 ár frá lokum viðkomandi reikningsárs, sbr. lög nr. 145/1994 um bókhald.

Þegar aðgangi er lokað eyðum við eða gerum ópersónugreinanlegar þær upplýsingar sem okkur ber ekki lagaskylda til að varðveita.

7. Réttindi þín

Þú átt rétt á að:

  • fá upplýsingar um og aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við vinnum um þig,
  • fá rangar eða ófullnægjandi upplýsingar leiðréttar,
  • fá upplýsingum eytt, að því marki sem okkur ber ekki skylda til að varðveita þær,
  • fá vinnslu takmarkaða eða andmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum,
  • fá afrit af upplýsingum þínum á tölvutæku formi (réttur til flutnings), og
  • afturkalla samþykki hvenær sem er, þar sem vinnsla byggir á samþykki.

Til að nýta réttindi þín hafðu samband við [email protected].

Ef þú telur að vinnsla okkar samrýmist ekki persónuverndarlögum getur þú beint kvörtun til Persónuverndar, Laugavegi 166, 105 Reykjavík, [email protected], www.personuvernd.is.

8. Öryggi upplýsinga

Við beitum viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum til að vernda persónuupplýsingar, þar á meðal dulkóðun gagna í flutningi og í geymslu, aðgangsstýringu að kerfum, aðgreiningu viðkvæmra gagna í sérstökum gagnaskemum og reglubundnu eftirliti með aðgangi. Kortaupplýsingar fara aldrei um kerfi okkar.

Komi upp öryggisbrestur sem líklegt er að hafi í för með sér áhættu fyrir réttindi þín tilkynnum við það til Persónuverndar og eftir atvikum til þín, í samræmi við lög.

9. Aldurstakmark

Þjónustan er ætluð einstaklingum 18 ára og eldri. Við söfnum ekki vísvitandi upplýsingum um börn. Ef okkur berst vitneskja um að barn hafi stofnað aðgang eyðum við upplýsingunum.

10. Vafrakökur

Vefsíðan sekond.is notar nauðsynlegar vafrakökur/vafrakökur til vefmælinga frá Google Analytics. Nánari upplýsingar er að finna í vafrakökustefnu okkar. Smáforritið notar ekki vafrakökur, en notar tæknileg auðkenni til að halda þér innskráðum og til að senda tilkynningar.

11. Breytingar á stefnunni

Við kunnum að uppfæra þessa stefnu. Verði um verulegar breytingar að ræða tilkynnum við það með hæfilegum fyrirvara í appinu eða með tölvupósti. Nýjasta útgáfan er ávallt aðgengileg á sekond.is.

12. Hafðu samband

Fyrirspurnir um persónuvernd: [email protected]