1. Gildissvið
1.1 Skilmálar þessir gilda milli Sekond ehf. (SEKOND) og notanda sem leggur inn vöru til sölu eða útleigu (innleggjandi). Innleggjandi samþykkir þá við skráningu vöru. Að öðru leyti gilda almennir notendaskilmálar SEKOND, þar með taldar skilgreiningar þeirra.
1.2 SEKOND selur og leigir innlagðar vörur í eigin nafni gagnvart kaupanda eða leigutaka. Innleggjandi verður ekki formlegur aðili að samningi við kaupanda eða leigutaka og á enga kröfu á hendur þeim; réttarsamband hans er eingöngu við SEKOND.
2. Skráning og tilboð
2.1 Skráning vöru til sölu felur í sér bindandi tilboð til SEKOND um sölu vörunnar á því innleggsverði sem birt er innleggjanda við skráningu.
2.2 Innleggjandi getur afturkallað tilboðið með því að afskrá vöruna hvenær sem er áður en kaupandi lýkur greiðslu. Meðan vara er skráð ábyrgist innleggjandi að hún sé tiltæk til afhendingar.
2.3 SEKOND áskilur sér rétt til að hafna eða fjarlægja skráningu innleggs án rökstuðnings, t.d. ef varan fellur ekki að vöruúrvali eða gæðakröfum þjónustunnar.
3. Samþykki og eignaryfirfærsla
3.1 Tilboð innleggjanda um sölu telst samþykkt af SEKOND á því augnabliki sem kaupandi lýkur greiðslu fyrir vöruna innan þjónustunnar. Við það samþykki færist eignarréttur vörunnar frá innleggjanda til SEKOND, sem selur hana kaupanda í eigin nafni í beinu framhaldi.
3.2 Við skráningu vöru til útleigu veitir innleggjandi SEKOND heimild til að leigja vöruna út í eigin nafni og fyrir eigin reikning á skráðum tímabilum. Eignarréttur vörunnar helst óskertur hjá innleggjanda.
4. Yfirlýsingar og ábyrgð innleggjanda
Með skráningu vöru staðfestir og ábyrgist innleggjandi að:
- a)hann sé lögmætur eigandi vörunnar og hafi óskoraða heimild til að ráðstafa henni;
- b)varan sé ófölsuð og brjóti ekki gegn vörumerkja-, höfundar- eða öðrum hugverkaréttindum þriðja aðila;
- c)varan sé ekki haldin veðböndum, eignarréttarfyrirvara eða öðrum kvaðum þriðja aðila;
- d)lýsing, ljósmyndir og ástandsmat séu rétt og gefi ekki villandi mynd af vörunni, og að greint hafi verið frá öllum göllum, sliti, breytingum og öðrum annmörkum sem máli skipta;
- e)varan sé hrein, örugg, lyktarlaus og í fullu nothæfu ástandi;
- f)innleggið sé ekki liður í atvinnustarfsemi hans. Stundi innleggjandi atvinnustarfsemi ber honum að tilkynna SEKOND sérstaklega um það áður en vara er lögð inn.
Yfirlýsingar þessar eru skaðleysis- og ábyrgðaryfirlýsingar gagnvart SEKOND og gilda jafnt um sölu og útleigu.
5. Afhending og áhættuskipting
5.1 SEKOND ákveður afhendingarleið. Feli SEKOND innleggjanda að senda vöruna eða afhenda kaupanda beint (þar með talið samkvæmt samkomulagi í spjalli skv. notendaskilmálum) fer sú afhending fram fyrir hönd SEKOND.
5.2 Innleggjandi skal afhenda vöruna til tilgreinds flutningsaðila eða kaupanda innan 4 virkra daga frá sölu. Fari afhending ekki fram innan frestsins ganga kaupin sjálfkrafa til baka, kaupandi fær fulla endurgreiðslu og innleggsverð kemur ekki til útgreiðslu.
5.3 Innleggjandi ber áhættu af vörunni (vegna rýrnunar, skemmda eða glötunar) þar til hún hefur verið afhent kaupanda eða sannanlega afhent tilgreindum flutningsaðila með rekjanlegum hætti. Innleggjandi skal nota þá flutningsleið sem SEKOND tilgreinir og varðveita afhendingarkvittun eða sendingarstaðfestingu.
6. Útgreiðsla innleggsverðs
6.1 Innleggsverð er greitt út á skráðan bankareikning innleggjanda 2 virkum dögum eftir að afhending til kaupanda hefur verið staðfest, nema annað leiði af gr. 6.2.
6.2 SEKOND er heimilt að fresta útgreiðslu meðan ágreiningur, tilkynntur galli, kortaendurkrafa eða rökstuddur grunur um svik eða falsanir sem tengist viðkomandi viðskiptum eða aðgangi innleggjanda er til meðferðar. Innleggjanda skal tilkynnt um frestun og ástæður hennar án ástæðulauss dráttar.
7. Skil kaupanda
7.1 Nýti kaupandi lögbundinn eða samningsbundinn rétt sinn til að falla frá kaupum innan frests skv. notendaskilmálum ganga kaup SEKOND af innleggjanda sjálfkrafa til baka: eignarréttur færist aftur til innleggjanda og innleggsverð kemur ekki til útgreiðslu.
7.2 SEKOND getur tilgreint heimilisfang innleggjanda sem skilastað og tekur innleggjandi þá við vörunni fyrir hönd SEKOND. Innleggjandi skoðar vöruna og skal tilkynna SEKOND um ástand hennar, studdu ljósmyndum ef um skemmdir eða vanefndir er að ræða, innan 48 klukkustunda frá móttöku. Berist tilkynning ekki innan frestsins telst varan móttekin í umsömdu ástandi.
7.3 Varan er að vali innleggjanda endurskráð í þjónustunni eða afskráð og helst í hans vörslu án frekari ráðstafana.
7.4 Hafi vara rýrnað vegna meðferðar kaupanda umfram það sem nauðsynlegt var til að kanna eðli, eiginleika og virkni hennar, gerir SEKOND bótakröfu á hendur kaupanda. Innheimtar bætur renna óskertar til innleggjanda að frádregnum sannanlegum innheimtukostnaði. SEKOND ábyrgist þó ekki að fullar bætur innheimtist.
7.5 Endurgreiðsla vegna skila eftir útgreiðslu:
Hafi innleggsverð þegar verið greitt út til innleggjanda áður en frestur kaupanda til að falla frá kaupum eða skila vöru er runninn út, og kaupandi nýtir lög- eða samningsbundinn skilarétt sinn réttmætlega, fellur réttur innleggjanda til innleggsverðsins niður og kaupin ganga til baka. Skuldbindur innleggjandi sig til að endurgreiða SEKOND móttekna fjárhæð þegar í stað og eigi síðar en innan 3 virkra daga frá því að honum er tilkynnt um skilin.
Til tryggingar endurgreiðslunni veitir innleggjandi SEKOND óafturkallanlega heimild til að:
- a)skuldajafna fjárhæðinni á móti öðrum ógreiddum eða síðari útgreiðslum til innleggjanda innan þjónustunnar skv. gr. 8.4;
- b)gjaldfæra fjárhæðina af skráðu greiðslukorti innleggjanda í þjónustunni; eða
- c)stofna beina kröfu í netbanka innleggjanda eða hefja hefðbundna innheimtu.
Komi til endurgreiðslu fær innleggjandi vöruna afhenta aftur í hendur í samræmi við ákvæði 7.2 og 7.3.
8. Gallar, ranglýsingar og falsanir
8.1 Reynist yfirlýsing skv. 4. gr. röng, eða beiti kaupandi vanefndaúrræðum (afslætti, riftun eða bótum) vegna galla sem ekki var greint frá við skráningu, getur SEKOND rift kaupum sínum af innleggjanda, skilað vörunni og krafist endurgreiðslu eða skaðabóta frá innleggjanda að því marki sem beint tjón SEKOND nemur (endurgreiðsla, afsláttur eða bætur til kaupanda auk beins kostnaðar).
8.2 Vakni rökstuddur grunur um að vara sé fölsuð eða brjóti gegn hugverkaréttindum er útgreiðsla stöðvuð þegar í stað. Innleggjanda skal tilkynnt um gruninn og veittur 7 daga frestur til að leggja fram fullnægjandi gögn um uppruna og áreiðanleika vörunnar. Sé vara endanlega metin fölsuð, eða berist engin fullnægjandi gögn innan frestsins, kemur innleggsverð ekki til útgreiðslu, varan er ekki afhent innleggjanda aftur og SEKOND er heimilt að afhenda hana rétthöfum eða lögreglu. Aðgangi innleggjanda kann jafnframt að verða lokað fyrirvaralaust.
8.3 Um kortaendurkröfur vegna viðskipta með vöru innleggjanda fer með sama hætti og um skil skv. 7. gr. eða galla skv. 8.1, eftir efnislegu eðli endurkröfunnar.
8.4 Kröfur SEKOND á hendur innleggjanda skv. þessari grein má skuldajafna á móti ógreiddum útgreiðslum til innleggjanda. Skuldajöfnun skal rökstudd skriflega og takmarkast við kröfur sem rekja má til viðskipta innleggjanda innan þjónustunnar.
8.5 Reynist vara fölsuð eða brjóti hún gegn vörumerkja-, höfundar- eða öðrum hugverkaréttindum þriðja aðila skal innleggjandi halda SEKOND skaðlausu af öllu tjóni og kostnaði sem af því hlýst, þar með talið:
- a)kröfum rétthafa um skaðabætur, hagnaðarskil eða annað endurgjald;
- b)sannanlegum og hæfilegum lögfræðikostnaði SEKOND vegna krafna rétthafa eða afskipta tollyfirvalda, lögreglu eða annarra stjórnvalda;
- c)kostnaði við sérfræðimat á uppruna og áreiðanleika vörunnar;
- d)kostnaði við haldlagningu, förgun eða afhendingu vörunnar til rétthafa eða stjórnvalda.
Reynist grunur um fölsun tilhæfulaus ber SEKOND kostnað skv. c-lið. Takmörkun bótaskyldu skv. gr. 9.7 gildir ekki um kröfur skv. þessari grein. SEKOND skal tilkynna innleggjanda um kröfu þriðja aðila án ástæðulauss dráttar og gefa honum kost á að koma að sjónarmiðum áður en henni er svarað eða hún viðurkennd.
9. Útleiga
9.1 SEKOND leigir vöruna út í eigin nafni á þeim tímabilum sem innleggjandi hefur skráð hana lausa. Bókun telst bindandi og staðfest þegar innleggjandi samþykkir hana innan þjónustunnar fyrir hönd SEKOND.
9.2 Leiguhlutdeild innleggjanda er greidd út á skráðan bankareikning 2 virkum dögum eftir að leigutímabili lýkur og skil hafa verið staðfest.
9.3 Taki innleggjandi við vöru við lok leigutímabils fyrir hönd SEKOND skal hann skoða hana og tilkynna SEKOND um tjón innan 24 klukkustunda frá móttöku, ásamt skýrum ljósmyndum. Berist tilkynning ekki innan þess frests telst varan móttekin án tjóns og full leigugreiðsla fer fram.
9.4 Tjón á vöru í útleigu og innheimtutilraun:
Verði tjón á vöru í útleigu umfram eðlilegt slit gerir SEKOND bótakröfu á hendur leigutaka samkvæmt notendaskilmálum og reynir gjaldfærslu á skráð greiðslukort hans eða stofnun kröfu í netbanka á grundvelli tjónamats. Innheimtar bætur renna óskertar til innleggjanda að frádregnum sannanlegum innheimtukostnaði. SEKOND ábyrgist ekki að bætur innheimtist og ber ekki sjálfstæða bótaskyldu eða ábyrgð gagnvart innleggjanda fáist bætur ekki greiddar af hálfu leigutaka.
9.5 Hámark bótakröfu og framsal kröfu:
Innleggjandi tilgreinir verðmæti vöru við skráningu til útleigu; það myndar hámark þeirrar bótakröfu sem SEKOND innheimtir hjá leigutaka innan þjónustunnar, að hámarki 50.000 kr. Takist ekki að innheimta bótakröfuna hjá leigutaka framselur SEKOND kröfuna ásamt nauðsynlegum gögnum til innleggjanda, sem getur þá leitað fullnustu hennar beint gagnvart leigutaka.
9.6 Innleggjandi skal afhenda vöru vegna staðfestrar bókunar á umsömdum tíma og stað. Fari afhending ekki fram af ástæðum sem innleggjandi ber ábyrgð á gengur bókunin til baka, SEKOND endurgreiðir leigutaka og leiguhlutdeild kemur ekki til útgreiðslu.
9.7 Ábyrgð innleggjanda við útleigu:
Reynist yfirlýsing skv. 4. gr. röng, eða fari afhending skv. gr. 9.6 ekki fram af ástæðum sem innleggjandi ber ábyrgð á, skal innleggjandi bæta SEKOND það beina tjón sem af því hlýst, þar með talið endurgreiðslu til leigutaka, kostnað vegna kortaendurkröfu og annan sannanlegan beinan kostnað. Bótaskylda skv. þessari grein takmarkast við uppgefið verðmæti vörunnar skv. gr. 9.5 og tekur ekki til óbeins tjóns. Kröfum skv. þessari grein má skuldajafna skv. gr. 8.4.
10. Bókhaldsgögn og skattar
10.1 Innleggjandi skráir kennitölu og bankareikning áður en fyrsta vara er lögð inn. Fyrir hver kaup SEKOND af innleggjanda verður til rafrænt fylgiskjal í þjónustunni sem inniheldur kennitölu, vörulýsingu, innleggsverð og dagsetningu.
10.2 Innleggjandi ber sjálfur fulla ábyrgð á eigin skattskilum, framtali og greiðslu opinberra gjalda vegna tekna sem hann aflar af sölu eða útleigu innlagðra vara.
11. Lok samnings og afskráning
11.1 Innleggjandi getur afskráð vörur og óskað eftir lokun aðgangs hvenær sem er. Viðskipti sem þegar hafa stofnast fyrir afskráningu, þar með taldar staðfestar bókanir, ófrágengnar sendingar og óliðnir skilafrestir, klárast að fullu samkvæmt skilmálum þessum.
12. Persónuvernd, trúnaður og ýmis ákvæði
12.1 Persónuvernd og trúnaður: Fái innleggjandi aðgang að persónuupplýsingum kaupanda eða leigutaka (t.d. nafni, heimilisfangi, símanúmeri eða samskiptasögu) vegna afhendingar eða skila, er honum einungis heimilt að nýta þær upplýsingar í þeim eina tilgangi að ljúka viðkomandi afhendingu. Innleggjanda er með öllu óheimilt að miðla þessum upplýsingum til þriðja aðila eða nýta þær í markaðssetningu, og ber að eyða þeim þegar afhendingu er lokið.
12.2 Breytingar á skilmálum: SEKOND getur breytt skilmálum þessum einhliða. Verulegar breytingar skulu tilkynntar innleggjendum með hæfilegum fyrirvara. Breytingar gilda ekki um viðskipti eða bókanir sem þegar hafa stofnast fyrir gildistöku þeirra.
12.3 Gildandi lög og varnarþing: Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi mál eða ágreiningur vegna skilmálanna eða viðskipta á grundvelli þeirra sem ekki tekst að leysa með samkomulagi skal því skotið til Héraðsdóms Reykjavíkur.